STJÓRNMÁL
&
STJÓRNSÝSLA
n Fræðigreinar
Pólitísk markaðsfjölmiðlun
Birgir Guðmundsson, dósent í fjölmiðlafræði við hug- og félagsvísinda-
svið Háskólans á Akureyri
Útdrátur
Flokksfjölmiðlun þreifst hér á landi fram undir síðustu aldamót og sú um-
breyting sem Blumler & Kavanagh (1999) kölluðu „Þriðja skeið pólitískrar boð-
miðlunar“ og felst m.a. í aukinni sérfræðiþekkingu í boðmiðlun innan stjórn-
málaflokka og mikilli fagvæðingu blaðamannastéttarinnar og fjölmiðla, hefur
haft styttri tíma til að þroskast en raunin var víða í nágrannalöndunum. Í þessari
grein eru birtar niðurstöður úr frambjóðendakönnun sem gerð var meðal fram-
bjóðenda allra stjórnmálaflokka í öllum kjördæmum fyrir Alþingiskosningarnar
2013. Niðurstöðurnar sýna með afgerandi hætti að íslenskir stjórnmálamenn
hafa litla tiltrú á fagmennsku blaðamanna, óhæði fjölmiðla gagnvart stjórnmála-
flokkum og þeirri óhlutdrægni sem alla jafna er talin fylgja markaðsvæðingu
og umbreytingu frá ytri yfir í innri fjölbreytni í fjölmiðlun (Hallin og Mancini,
2004). Þvert á móti virðast stjórnmálamenn sjá íslenskan fjölmiðlamarkað í póli-
tísku ljósi þar sem flokksmiðlun og ytri fjölbreytni er áberandi mikilvæg. Leidd
eru rök að því að þessar niðurstöður styðji að til hafi orðið kerfi „pólitískrar
markaðsfjölmiðlunar“ á Íslandi, m.a. vegna mikillar sögulegrar nálægðar flokks-
fjölmiðlunar, bernsku í fagvæðingu blaðamannastéttarinnar, fárra og frjálslegra
reglna um fjölmiðlamarkaðinn, mikillar samþjöppunar eignarhalds á fjölmiðlum
og samkrulls eigendavalds og flokkspólitíkur.
Efnisorð: Pólitísk boðmiðlun; pólitísk slagsíða; fagleg fjölmiðlun; stjórnmál
og fjölmiðlar; viðhorf stjórnmálamanna.
A Politcally Commercial Media System
Abstract
Political parallelism was a characteristic of the Icelandic Media System until the
late nineties. The transformation that Blumler & Kavanagh characterized as
Icelandic Review of Politics and Administration Vol. 9, Issue 2 (509-530)
© 2013 Contact: Birgir Guðmundsson, birgirg@unak.is
Article first published online Desember 19th 2013 on http://www.irpa.is
Publisher: Institute of Public Administration and Politics, Gimli, Sæmundargötu 1, 101 Reykjavík, Iceland
Stjórnmál & stjórnsýsla 2. tbl., 9. árg. 2013 (509-530) (Fræðigreinar)
© 2013 Tengiliður: Birgir Guðmundsson, birgirg@unak.is
Vefbirting 19. desember 2013 – Birtist á vefnum http://www.irpa.is
Útgefandi: Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, Gimli, Sæmundargötu 1, 101 Reykjavík
DOI: http://dx.doi.org/10.13177/irpa.a.2013.9.2.13
This work is licensed under a Creative Commons Attribution 3.0 License.