STJÓRNMÁL & STJÓRNSÝSLA n Fræðigreinar Staðbundin nálgun og nýsköpun í hverfum Reykjavíkurborgar Óskar Dýrmundur Ólafsson, MPA, framkvæmdastjóri hjá Reykjavíkurborg Hervör Alma Árnadóttir, dósent við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands Útdráur Í borgum hefur verið leitað ýmissa leiða í stjórnun þegar tekist er á við áskoranir tengdar því að veita íbúum viðeigandi þjónustu og er kallað eftir nýsköpun í því samhengi. Ein leið sem vakið hefur eftirtekt byggir á staðbundinni nálgun í opinberri þjónustu. Markmiðið hér er að fjalla um staðbundna nálgun í stjórnun og áhrif hennar á þjónustu með þann tilgang að auka farsæld íbúa. Spurt er; hvernig getur staðbundin nálgun nýst við nýsköpun opinberrar þjónustu? Til að leita svara við spurningunni er rýnt í dæmi varðandi þjónustu í hverfi Reykjavíkurborgar þar sem staðbundinni nálgun hefur verið beitt við stjórnun. Helstu niðurstöður benda til þess að staðbundin nálgun við stjórnun geti verið gagnleg til þess að hanna og veita skilvirkari þjónustu og mæta fjölbreyttum þörfum íbúa. Með því að beita nálguninni sé skapaður grundvöllur fyrir auknum tækifærum fyrir inngildingu jaðarsettra hópa og stutt við tengslamyndun milli íbúa með þeim afleiðingum að samfélagið styrkist. Staðbundin nálgun birtist meðal annars í því sem kenna má við borgaralega leiðtogafærni og gæti því verið fýsilegur kostur í stjórnun borga og bæja sem eru að takast á við fjölbreyttar þarfir íbúa í fjölmenningarsamfélögum. Þær nálganir gætu komið í stað gamalreyndra aðferða sem hafa ekki reynst nægilega vel við að leysa úr margbreytilegum áskorunum samtímans. Efnisorð: Borgir; hverfi; nýsköpun; þjónusta; staðbundin nálgun; inngilding. Icelandic Review of Politics and Administration Vol. 20, Issue 1 (49-64) © 2024 Contact: Óskar Dýrmundur Ólafsson, dyrmunduro@gmail.com Article first published online June 20 th 2024 on http://www.stjornmalogstjornsysla.is Publisher: Institute of Public Administration and Politics, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík, Iceland Stjórnmál & stjórnsýsla 1. tbl. 20. árg. 2023 (49-64) Fræðigreinar © 2024 Tengiliður: Óskar Dýrmundur Ólafsson, dyrmunduro@gmail.com Vefbirting 20. júní 2024 - Birtist á vefnum http://www.stjornmalogstjornsysla.is Útgefandi: Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík DOI: https://doi.org/10.13177/irpa.a.2024.20.1.3 This work is licensed under a Creative Commons Attribution 3.0 License.