14 ÞJÓÐMÁL VETUR 2014 Í slenska þjóðin varð fyrir áfalli við banka- hrunið haustið 2008. Friðsæl, bjargálna smáþjóð við ysta haf varð skyndilega að hinum verstu skálkum í augum umheims- ins. Hún var sökuð um að vilja ekki standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar, og Bretar settu jafnvel hryðjuverkalög á einn íslenska bankann og létu þau um skeið ná til íslenska seðlabankans og jármálaeftirlitsins: Á vefsíðu breska jármálaráðuneytisins var Landsbankinn sýndur á lista með Al-Kaída, Talibönum og ríkisstjórnum Súdans og Norður-Kóreu. Þjóðin vissi ekki sitt rjúk- andi ráð. Skipuð var rannsóknarnefnd með víðtækar rannsóknarheimildir og friðhelgi. Fólk, sem kynni að telja nefndina brjóta á sér, var þannig svipt réttinum á að bera hugsanleg brot á sér undir dómstóla. Hvað sem því líður, voru að vonum fróðlegar upplýsingar í skýrslu nefndarinnar, sem birtist vorið 2010. Meginniðurstöður rann- sóknarnefndarinnar voru, að orsakir banka- hrunsins hefðu verið of ör vöxtur íslensku bankanna árin fyrir hrun þeirra og keris- bundið vanmat á áhættuþáttum í útlánum þeirra. Vanmat á kerisbundinni áhættu Þ essar meginniðurstöður rannsóknar- nefndar Alþingis eru áreiðanlega réttar, svo langt sem þær ná. Nefndin taldi bank- ana hafa lánað of mikið til þriggja fyrirtækja- hópa, sem nátengdir hefðu verið eigendum bankanna. „Af öllum þeim fyrirtækjahóp- um sem höfðu veruleg útlán í íslenska bankakerinu stendur uppi stór hópur fyrirtækja sem tengdist Baugi Group,“ sagði í skýrslu nefndarinnar (2010a, bls. 189). „Í öllum þremur bönkunum sem og í Straumi-Burðarási skapaði þessi hópur of stóra áhættu.“ Síðan sagði nefndin (bls. 190): „Rannsóknarnefnd Alþingis telur að samþjöppun áhættu hjá íslensku bönk- unum hai verið orðin hættulega mikil þó nokkru fyrir fall þeirra. Bæði á þetta við um lánveitingar til ákveðinna aðila innan hvers banka en jafnframt að sömu hópar hai myndað stórar áhættur í leiri en einum banka. Af þeim sökum hai kerisleg áhætta vegna útlána verið orðin veruleg. Skýrasta dæmið um þetta er Baugur Group og fyrirtæki tengd því.“ Nefndin bætti við, Hannes Hólmsteinn Gissurarson Viðhorf Alistairs Darlings til Íslendinga