RAGNAR JÓHANNSSON Hver fjarlægði lík Staðarbræðra? Tilgáta um glæp 1. Forsaga ferðarinnar Vinsælt er að ganga Kjalveg milli Hvítárness og Hveravalla. Þá er farin sú leið sem kölluð hefur verið gamli Kjalvegur og liggur frá Hvítárnesi, upp með Fúlukvísl að Þverbrekknamúla og svo áfram meðfram hinu tignarlega Hrútfelli með sínum ört hopandi Regnbúðajökli að Þjófadölum og loks áfram að Hveravöllum. Reyndar var þessi leið ekki fjölfarin fyrr á öldum þegar Kjölur var grónari og uppblástur ekki eins langt genginn og hann er nú — og því ekki sú leið sem Staðarmenn fóru þegar þeir fóru sína örlaga- ríku ferð árið 1780, heldur er farið upp með Svartá að Svartár- botnum og því næst yfir Kjalhraun að Hveravöllum Yfir hraunið er fylgt eftir vörðum. Örlög Reynistaðarbræðra eru vel þekkt. Bjarni og Einar, synir stórbóndans á Reynistað, Halldórs Vídalín Bjarnasonar, fóru suður yfir Kjöl sumarið 1780 ásamt Jóni Austmann Þorvaldssyni, ráðsmanni á Reynistað til að kaupa fé sunnan heiða. Ástæða þess var sú að nær allt fé á Norðurlandi hafði þurft að fella vegna fjárkláða. 1 Árið 1772 var farið að skera niður allt fé og var það al- mennt framkvæmt í öllum héruðum þar sem sýkin var, á árunum 1772–1779. Eftir það tóku menn að keppast við að kaupa fé af ósýktum svæðum af Norðausturlandi og Suðausturlandi. Skírnir, 186. ár (vor 2012) 1 Fjárkláðinn hafði borist með kynbótafé því sem Innréttingarnar höfðu flutt inn en mörkuð hafði verið sú stefna að aðalútflutningsgrein Íslands skyldi vera ullarvaðmál. Veikin barst með enskum hrút sem fluttur var að Leirá í Borgarfirði 1760. Um 1766 er sagt að sýkin hafi eytt mestöllu fé á svæðinu frá Sólheima- sandi að Öxnadalsheiði, að Vestfjörðum undanskildum (Jón Eyþórsson, 1937 : 4). Skírnir vor 2012_Layout 1 17.4.2012 09:39 Page 195