FrÆÐIGreINAr yFIrLIT LÆKNAblaðið 2010/96 691 Ágrip Tilgangur: Að kanna tíðni fylgikvilla á meðgöngu, í fæðingu og hjá nýburum kvenna í kjörþyngd, of þungra og of feitra við upphaf meðgöngu. Þátttakendur og aðferðir: Rannsóknin er aftur- skyggn og tilfellaviðmiðuð. Upplýsingum um þyngd við upphaf meðgöngu var safnað hjá 600 konum; þar af voru 300 í kjörþyngd (þyngdarstuðull (ÞS) 19,0-24,9), 150 of þungar (ÞS 25,0-29,9) og 150 of feitar (ÞS ≥30). Tíðni fylgikvilla var borin saman milli hópanna. Niðurstöður: Of feitar konur eru líklegri til að hafa langvinnan háþrýsting (p<0,001) fyrir þungun, fá meðgönguháþrýsting (p=0,03), með- göngueitrun (p=0,007), meðgöngusykursýki (p<0,001), einkenni frá stoðkerfi (p=0,04), að framkalla þurfi fæðingu (p=0,006) og að fæða með keisaraskurði (p<0,001), bæði bráða- (p=0,012) og valkeisaraskurði (p=0,008), samanborið við mæður í kjörþyngd og ofþyngd. Nýburar of feitra kvenna eru þyngri (p=0,004), með stærra höfuðummál (p<0,001) og eru oftar lagðir inn á nýburagjörgæslu (p=0,004) en börn mæðra í kjörþyngd og ofþyngd. Ályktun: Offita hefur óæskileg áhrif á heilsufar verðandi mæðra og barna þeirra. Áhrifin koma fram á meðgöngu, í fæðingu og hjá börnum þeirra. Mikilvægt er að konur á barneignaraldri fái upplýsingar um hvaða áhrif offita hefur á meðgöngu, fæðingu og nýbura. Inngangur Ofþyngd og offita eru vaxandi vandamál hér á landi líkt og í öðrum vestrænum löndum og eru konur á barneignaraldri þar ekki undanskildar. 1 Samkvæmt upplýsingum úr hand- bók Hjartaverndar er algengi þyngdarstuðuls yfir 25 kg/m 2 um 28% fyrir konur á aldrinum 20-29 ára, 42% fyrir konur 30-39 ára og 55% fyrir konur 40-49 ára. 2 Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að ofþyngd og offita verðandi mæðra getur haft neikvæð áhrif á meðgöngu, fæðingu og nýbura. 3-8 Sýnt hefur verið fram á að of feitar konur eru líklegri til að vera með háþrýsting fyrir þungun og þær eru einnig líklegri til að fá háþrýsting á meðgöngu og fá frekar meðgöngueitrun en konur í kjör- þyngd. 3, 9-13 Meðgöngusykursýki er hins vegar algengasti fylgikvilli ofþyngdar/offitu þungaðra kvenna. 11, 14-16 Ómeðhöndluð sykursýki á með- göngu getur haft í för með sér óhóflega þyngdar- aukningu barns, legvatn verður of mikið (poly- hydramnion) auk vandamála við fæðingu og á nýburaskeiði. 3, 4, 17, 18 Offita móður, án meðgöngusykursýki, hefur verið tengd fæðingum þungbura 3 en þungburi er yfirleitt skilgreindur sem barn með fæð- ingarþyngd ≥4500 g. 19 Konur í ofþyngd og með offitu eru líklegri til að þurfa inngrip í fæðingu, svo sem framköllun fæðingar, 10 fæðingu með keisaraskurði 1, 3, 14, 15 og fæðingu með sogklukku eða töng 10, 20, 21 samanborið við konur í kjörþyngd. Þungburar hafa verri horfur síðar á ævinni hvað varðar líkur á offitu og sjúkdómum tengdum henni. 22, 23 Framköllun fæðingar og fæðing með keisaraskurði eru algengari hjá of feitum konum en konum í kjörþyngd. 3, 11, 16, 24-26 Líkur á axla- klemmu í fæðingu aukast ef barn er þungburi 27 og blóðsykurfall á nýburaskeiði er algengara, einkum ef móðirin hefur sykursýki. 1, 3, 14, 17, 18, 25 Börn sykursjúkra kvenna hafa auknar líkur á axla- klemmu samanborið við jafn þung börn kvenna án sykursýki. 28 Offita mæðra hefur hins vegar ekki jafn skýr tengsl við skaða á fæðingarvegi, axla- klemmu barns, lágt Apgarstig, blóðsykurfall barns og þörf fyrir innlögn barns á nýburagjörgæslu. 3, 10, 11,16, 24, 29 Vandamál of þungra kvenna tengd meðgöngu eru einnig til staðar fyrir þungun, því frjósemi er skert og tíðni fósturláta er aukin. 30 Tíðni fóstur- galla er aukin hjá fóstrum of þungra kvenna, eink- um eru það gallar í miðtaugakerfi, svo sem klofinn hryggur og hjartagallar, auk fjölkerfa fóstur- galla. 6 Þar sem nýgengi ofþyngdar og offitu fer vax- andi hér á landi ákváðum við að skoða fylgikvilla meðal of þungra og of feitra kvenna á meðgöngu og í fæðingu og kanna áhrif þeirra á fæðingar- þyngd nýbura og tíðni fylgikvilla á nýburaskeiði. Áhrif þyngdar verðandi mæðra á meðgöngu, fæðingu og nýbura ólöf Jóna elíasdóttir 1 deildarlæknir Hildur Harðardóttir 1,2 fæðinga- og kvensjúkdómalæknir Þórður Þórkelsson 1,3 barnalæknir Lykilorð: meðganga, fæðing, ofþyngd, offita, nýburi. 1 Læknadeild Háskóla Íslands, 2 kvennadeild, 3 Barnaspítala Hringsins, Landspítala. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Hildur Harðardóttir hhard@landspitali.is