TÍMARIT UM UPPELDI OG MENNTUN/ICELANDIC JOURNAL OF EDUCATION 31(1) 2022 1 Tímarit um uppeldi og menntun / Icelandic Journal of Education | 31(1), 2022, 1–23 EYRÚN MARÍA RÚNARSDÓTTIR | MENNTAVÍSINDASVIÐI HÁSKÓLA ÍSLANDS https://doi.org/10.24270/tuuom.2022.31.1 VINATENGSL UNGLINGA OG STUÐNINGUR VINA EFTIR UPPRUNA Þau tengsl sem unglingar mynda við flutning til nýs lands geta ráðið miklu um líðan þeirra og velferð. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á vinatengsl eftir uppruna unglinga. Kannaður var fjöldi vina af íslenskum og erlendum uppruna og stuðningur frá þeim, tengsl vinafjölda og hlutfalls nemenda af erlendum uppruna í skóla þátttakenda og tengsl aldurs við flutning til Íslands og vinafjölda. Gögnum var safnað með spurningalistakönnun sem lögð var fyrir í níu grunnskólum. Alls svöruðu 806 unglingar úr 8., 9. og 10. bekk könnuninni og var svarhlutfall 82%. Niðurstöður sýndu að vinir tilheyrðu frekar sama upprunahópi en hópi af ólíkum uppruna. Eftir því sem hlutfall nemenda af erlendum uppruna var hærra í skóla jukust líkur á að ungmenni af íslenskum uppruna ættu vini af erlendum uppruna. Því yngri sem ungl- ingur var við flutning til Íslands, þeim mun líklegra var að hann ætti marga vini af íslenskum uppruna. Efnisorð: vinatengsl, unglingar, vinastuðningur, uppruni, fjölbreytni í skólaumhverfi INNGANGUR Vinir eru börnum og unglingum mikilvæg uppspretta félagsskapar, stuðnings, viður- kenningar og nándar. Á unglingsárunum dýpka jafnan tengsl vina frá því sem áður var og mikilvægi þeirra í lífi unglingsins eykst samfara auknu sjálfstæði frá foreldrum (Bag- well og Bukowski, 2018; Hartup og Stevens, 1997; Sigrún Aðalbjarnardóttir, 2019). Sam- eiginleg áhugamál eru oft grundvöllur vinatengsla og máltækið „líkur sækir líkan heim“ á hér við því vinir eiga að jafnaði ýmislegt fleira sameiginlegt en áhugamálin. Rannsóknir frá Bandaríkjunum og öðrum vestrænum ríkjum sýna til að mynda að unglingar hafa til- hneigingu til að tengjast frekar vinaböndum innan eigin þjóðernishóps en út fyrir hann (sjá t.d. Graham o.fl., 2009; Titzmann o.fl., 2012). Íslenskar rannsóknir benda til þess að ungmenni af erlendum uppruna eignist færri vini af íslenskum uppruna en þau myndu kjósa (Gestur Guðmundsson, 2013; Hermína Gunnþórsdóttir og Lilja Rós Aradóttir, 2021; Nína V. Magnúsdóttir, 2010) og þau upplifi frekar að vera höfð út undan eða vera strítt í