Sálfræðiritið – Tímarit Sálfræðingafélags Íslands 18. árg. 2013, bls. ??–??? Sálfræðiritið, 18. árg. 2013 Sálfræðiritið – Tímarit Sálfræðingafélags Íslands 18. árg. 2013, bls. 93–102 S álfræðingar nota sálfræðileg próf og kvarða meðal annars til að auðvelda greiningarstarf og meta árangur meðferðar. Löng hefð er innan sálfræðinnar fyrir því að nota mælitæki og próf af ýmsum toga til að meta eiginleika og hegðun manna. Í klínísku starfi hérlendis eru stöðluð próf notuð að því marki sem þau eru til en einnig eru notuð þýdd og óstöðluð próf og kvarðar. Engar kröfur eru frá heilbrigðisyfirvöldum um notkun tiltekinna prófa og engar sérstakar reglur gilda um sálfræðileg próf á Íslandi. Í siðareglum sálfræðinga (kafla II.2, 2012) kemur þó fram mikilvægi þess að sálfræðingar „byggi(r) störf sín á vísindalegri þekkingu og rannsóknum“ og að þeir „keppi(r) að því að viðhalda og auka faglega hæfni í störfum sínum“. Prófanefnd Sálfræðingafélags Íslands hefur það hlutverk að hafa yfirlit yfir sálfræðileg próf sem notuð eru hér á landi, stuðla að og vera til ráðgjafar við þróun og staðfærslu sálfræðilegra prófa. Nefndin hefur lengi verið ein af fastanefndum félagsins. Fyrir um tveimur árum var ákveðið að efla starfsemi nefndarinnar og setti núverandi nefnd sem kjörin var á aðalfundi félagsins sér þau markmið að kortleggja betur stöðu prófamála sálfræðinga hér á landi og kanna, samhliða því, hvort hægt sé að koma á fót miðlægum upplýsingagrunni um sálfræðileg próf á íslensku. Til að mat og greining sálfræðinga megi vera sem nákvæmust og þjóni hagsmunum skjólstæðinga sem best, þurfa tækin sem notuð eru að standast ýmsar kröfur, meðal annars um réttmæti og áreiðanleika. Því er mikilvægt að sálfræðingar á Íslandi séu upplýstir um próffræðilega eiginleika mælitækja sem til eru á íslensku og notuð eru í klínísku starfi. Aukið aðgengi að upplýsingum um sálfræðileg próf og kvarða á íslensku mun stuðla að aukinni fagmennsku Fyrirspurnum vegna greinarinnar skal beina til Ingu Hrefnu Jónsdóttur forstöðusálfræðings á Reykjalundi, 270 Mosfellsbær. Netfang: ingah@reykjalundur.is. Mælitæki og sálfræðileg próf í notkun hjá sálfræðingum á Íslandi: Rafræn könnun prófanefndar Sálfræðingafélags Íslands Inga Hrefna Jónsdóttir Reykjalundur endurhæfingarmiðstöð SÍBS Ingunn Hansdóttir Háskóli Íslands Ragnar Pétur Ólafsson Landspítali og Háskóli Íslands Sigurrós Jóhannsdóttir Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins Hákon Sigursteinsson Reykjavíkurborg – Þjónustumiðstöð Breiðholts Guðfnna Halla Þorvaldsdóttir Sálfræðingafélag Íslands brought to you by CORE View metadata, citation and similar papers at core.ac.uk provided by Landspítali University Hospital Research Archive